Starfsnám hjá Vecct – sumar 2026
Vecct leitar að tveimur starfsnemum fyrir sumarið 2026, einum fatahönnuði og einum grafískum hönnuði.
Vecct er íslenskt hlaupafatamerki sem sérhæfir sig í tæknilegum fatnaði. Starfsnámið er hugsað yfir sumartímann og vinnutímar eru sveigjanlegir. Þetta hentar því vel samhliða hlutastarfi eða öðrum verkefnum. Starfið er launað og felur í sér fjölbreytt verkefni á sviði hönnunar, vöruþróunar, markaðssetningu og öðrum þáttum daglegs reksturs fatamerkis á Íslandi. Þetta er kjörið tækifæri fyrir hönnuði sem vilja öðlast dýrmæta reynslu í raunverulegu vinnuumhverfi á sviði hönnunar.
Æskilegt er að viðkomandi búi yfir eftirfarandi eiginleikum:
• Vilji til þess að læra nýja hluti
• Skilningur á menningarlegu landslagi
• Óhræddur við að taka áhættur
• Nákvæmni, stundvísi og fagleg vinnubrögð
Hlutverk fatahönnuðar í starfsnámi felur m.a. í sér:
• Rannsóknar-, hugmynda- og skissuvinna
• Tækniskjöl fyrir framleiðendur
• Aðstoð við vöruþróun nýrra og núverandi stíla
Æskileg tæknileg kunnátta:
• Adobe forrit (Photoshop, InDesign, Illustrator, etc.)
Grunnþekking á sviði sníðagerðar
• Grunnskilningur á „garment construction”
Hlutverk grafísks hönnuðar í starfsnámi felur m.a. í sér:
• Almenn rannsóknar-, hugmynda- og skissuvinna
• Mörkun á vörumerkinu Vecct – hugmyndir útfærðar í nothæf kerfi
• Grafík fyrir fatnað, stafræna og prent miðla
• Rannsóknar- og hugmyndavinna fyrir mótun á markaðsherferðum
• Almenn grafísk vinna innanhúss
Æskileg tæknileg kunnátta:
• Photoshop, InDesign, Illustrator
• After Effects/Cavalry (kostur, ekki krafa)
• 3D forrit, Cinema4d/Blender (kostur, ekki krafa)
• Figma (kostur, ekki krafa)
Umsóknir sendist á netfangið info@vecct.store og skulu innihalda CV, portfolio og stuttan texta um það hvers vegna viðkomandi hefur áhuga á starfsnámi hjá Vecct. Umsóknarfrestur er til og með 31. mars.

