Þriðjudaginn 28. apríl standa Vecct og Hringdu fyrir Íslandsmeistaramóti í götumílu. Vecct Mílan er vottuð og skipulögð í samráði við Frjálsíþróttasamband Íslands og markar hlaupið fyrstu götumílukeppni sem haldin er hér á landi.
Vegalengd: 1609 m
Hækkun: 0 m
Undirlag: Malbik
BRAUTIN
Um er að ræða hraða og marflata braut sem skipulögð var í samráði við fagfólk innan hlaupaíþróttarinnar og fylgir hún öllum tilsettum skilyrðum World Athletics og Frjálsíþróttasambands Ísland. Hringurinn er 1119 metra langur þar sem 490 metra beinn kafli er hlaupinn tvisvar. Keppnin fer fram á Kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.
GÖTUMÍLAN
Mílan er ein af aðeins átta viðurkenndum vegalengdum götuhlaupa og jafnframt sú stysta. Mílan á sér langa og rótgróna sögu í heimi hlaupa. Við hlökkum til að leyfa hlaupurum á Íslandi að spreyta sig á hinni sögufrægu götumílu í fyrsta skipti á Íslandi.
Opnað verður fyrir skráningar fimmtudaginn 16. febrúar og verða þá birtar frekari upplýsingar um dagskrá keppnisdags og fyrirkomulag hlaupsins.
Skráning opnar eftir
00
Dagar
00
Klst
00
Mínútur
00
Sekúndur
This offer has ended

